Í fyrsta gír
Suma daga er eins og ég sé föst í fyrsta gír og kemst bara ekkert áfram, sama hversu marga bolla af kaffi ég drekk. Í morgun mætti ég ágætlega of seint í fyrirlestur (reyndar gerist það ekki eingöngu á slow dögum hjá mér :-/) bara vegna þess að ég var svo lengi að taka mig til. Fór svo á bókasafnið eftir hádegi en gafst upp eftir 2 tíma, búin að lesa 2 blaðsíður og drekka jafnmarga kaffibolla. Ég viðurkenni það alveg að þetta reyndi pínulítið á þolinmæðina! Get orðið öfga pirruð þegar gengur illa að lesa og kenni öllum í kringum mig um einbeitingarleysið. Það er nóg að næsti maður andi aðeins of hátt. En það sem mér finnst mest pirrandi þegar svona liggur á mér eru:
1) tölvur.......verð geðveik á að sitja við hliðina á manneskju sem hamast á lyklaborðinu
2) prentarar
3) HÁIR HÆLAR....need i say more
4) gemsar. Þó þeir séu á silent þá er það ekki minna truflandi þegar fólk hendist út til að svara í símann þegar hann víbrar
5) fólk að labba upp og niður tröppur
6) kvefað fólk sem gerir ekki annað en að hósta eða sníta sér eða sjúga uppí nefið
En maður á samt ekki að leyfa svona smáatriðum að fara í taugarnar á sér. Héðan í frá ætla ég að hafa það sem reglu að sama hversu ömurlegur dagurinn er þá verð ég að finna a.m.k. eitt gott við hann. Svo, það góða við daginn í dag er að ég fann mér lesfélaga OG það eru bara 11 dagar þar til certain someone kemur í heimsókn :-)